Fyrsta tölublað Útiveru á því herrans ári 2011 hefur litið dagsins ljðós og er verið að dreifa því til áskrifenda og í verslanir. Í blaðinu er gnótt efnisríkra greina og víða komið við að venju. Forsíðuna prýðir mynd af skonnortunni Hildi frá Húsavík en í blaðinu er grein sem segir frá ferð hennar til Kangertittivaq á Grænlandi eða Scoresbysunds sem mun vera lengsti fjörður í víðri veröld.
Af öðru efni í blaðinu nú má nefna:
- Það er ekki á færi allra að ganga þvert yfir stærsta jökul Evrópu en það gerðu nokkrir félagar úr Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Ferðinni er lýst í máli og myndum en ferðalangarnir lögu að baki 125 kílómetra i misjöfnum veðrum.
- Útivera slæst í hóp galdramanna og útilegumanna í ferð á vegum Ferðafélags Íslands frá Norðurfirði til Reykjarfjarðar á Ströndum. Þar segir m.a. af ryðbrunnum Chevrolet, botnlausum rjómaskálum, friðelskandi barnakennurum, Herröði hvítaský, menntuðu einveldi og siggrónum selum.
- Ferðafélagið Útivist hefur í starfi sínu og ferðaáætlunum lagt áherslu á ferðalög þar sem fjölskyldan öll getur tekið þátt. Í grein segir Björk Guðbrandsdóttir fararstjóri okkur frá gönguferð um náttúruparadísina í Núpsstaðarskógum austan Lómagnúps.
- Ljósi brugðið á listaverkið Florens – eina merkilegustu borg Ítalíu þar sem ódauðleg listaverk eru við hvert fótmál. Svava Jónasdóttir blaðamaður leiðir okkur í allan sannleika um þessa víðfrægu borg listarinnar.
- Þótt mannvirki öll í Hornbjargsvita séu traust þurfa þau aðhlynningar við eins og önnur mannanna verk. Hér segir frá vinnuferð í Látravík, vitavörðunum Jóhanni og Óla komma, beljandi öldum, þverhníptum björgum og dísilnum sem of lengi hafði verið í gangi.
- Lesendur Útiveru fá að kynnast frábærum ljósmyndum Þorsteins Ásgeirssonar sem hefur náð einstökum tökum á því verkefni sínu að fanga íslenska náttúru á ljósmynd.
Næsta tölublað Útiveru 2011 kemur út snemmsumars og er efnisvinnsla í fullum gangi. M.a. mun Gerður Steinþórsdóttir leiða okkur í allan sannleika um undur og fegurð sunnanverðra Vestfjarða og Gunnar H. Hólm fer með okkur í langa og strembna göngu frá Setri, skála ferðaklúbbsins 4x4 sunnan Hofsjökuls, að skála Ferðafélags Íslands við Nýjadal. Ritstjórn Útiveru hvetur alla sem vettlingi geta valdið (eða penna) til að senda okkur efni, texta og myndir því án aðstoðar lesendanna getur Útivera ekki verið. Svo einfalt er það. Þá hvetjum við alla sem ekki hafa gert áskrifendur til að skrá sig sem slíka inn á vefinn okkar.
Útivera fæst sem fyrr á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson.
Yfirgripsmikil Útivera