Útivera - tímarit um útivist

 
Þú ert hérna: News Fullt af nýjum búnaði

Fullt af nýjum búnaði



tnf-rucky-chucky.jpg North Face þarf ekki að kynna fyrir neinum en eins og svo margir framleiðendur kynna þeir algera nýjung þetta árið sem er ný tegund af sóla sem þeir kalla SnakePlate Technology. Þessi sóli á að verja göngumann mun betur fyrir hörðum og beittum hlutum en aðrir sólar. Þessu ná þeir fram með því að sólinn er "snákslaga" og snýst því á alla kanta. Önnur nýjung í skóm frá North Face er X-technology sem er í tveimur liðum, annars vegar betri öklastuðningur og hinsvegar betri púði í hælnum.

mhw_helion2.jpg Mountain Hardwear hafa hingað til ekki verið framarlega í sölu tjalda en nú kann að vera breyting þar á því þeir kynna til sögunnar nýja tjaldalínu sem er mun léttari en gengur og gerist. Efnið í tjaldinu er allt að 25% léttara, tjaldstangirnar sem kallst Atlas UL stangir er léttari og svona mætti lengja telja upp. Allt í allt gerir þetta tjöldin ótrúlega létt að sögn framleiðanda og nefna sem dæmi  2ja manna tjald er heitir Helon og vegur ekki nema 1,5 kg.

primus-etaexpress.jpgHinir skandinavisku frændur okkar hjá Primus hafa greinilega orðið yfir sig hrifnir af Jet Boil prímusnum því þeir kynna til leiks EtaExpress prímusinn sem nær 80% nýtingu á eldsneytið. Eta kerfið byggist að miklu leyti á vindhlíf umhverfis logann sem hindrar hitann í að sleppa í burtu. EtaExpress vegur ekki nema 418 grömm án eldsneytis (gas) og þá er talinn með 1. lítra pottur með loki sem nota má sem pönnu.


airscape-back-system.jpgBakpokaframleiðandinn Osprey setur hvorki meira né minna en 9 nýja bakpoka á markaðinn á þessu ári. Að sögn framleiðanda auðvitað hver öðrum betri en flestir eru útbúnir nýja bakkerfinu frá Osprey sem nefnist AirScape sem m.a. auðveldar loftstreymi milli bakpoka og burðarmanns svo og nýja mjaðmaól sem hægt er að laga að eigandanum hverju sinni. Þannig munu vel valdar útivistarverslanir geta "brætt" ólina svo hún leggist fullkomlega að vexti eigandans.


bioflex-50-back.jpg
Berghaus kynnir einnig nokkra nýja bakpoka á þessu ári og flestir þeirra eru með hið verðlaunða BioFlex kerfi á bakinu en það þykir hafa verið einkar vel heppnað og hlotið bæði lof gagnrýnenda  og ekki síður göngufólks.