Útivera - tímarit um útivist

 
Þú ert hérna: News Bláa Lóns þrautin

Bláa Lóns þrautin


Ljósmynd Jónas Guðmundsson
Ljósmynd Jónas Guðmundsson
Í dag fór fram hin árlega Bláa Lónsþraut en hún er árlegur viðburður Hjólreiðafélags Reykjavíkur og var haldin í þrettánda skiptið í dag. Alls tóku um 120 manns þátt og lögðu af stað frá Strandgötunni í Hafnarfirði í meinlætis veðri í morgun. Flestir taka þátt sér til ánægju og yndisauka en aðrir sem hluta af keppnisröð sinni.

 

Samkvæmt keppnishöldurum voru tímarnir aðeins lakari en á síðasta ári enda leiðin nokkuð blaut. Hjólað er sem leið liggur eftir Krýsuvíkurvegi og þaðan farin svokölluð Djúpavatnsleið til Grindavíkur og í Bláa Lónið þar sem keppendur láta líða úr sér eftir þessa 60 km. hjólaleið.

Helstu úrslit voru sem hér segir;

Karlar:

1. Hafsteinn Geirsson á tímanum 01.50.56
2. Árni Jónsson á tímanum 01.53.13
3. Sigurgeir Agnarsson á tímanum 01.59.06

Konur:

1. María Guðmundssdóttir á tímanum 02.40.19
2. Bryndís Þorsteinsdóttir á tímanum 02.47.24
3. Katla Maríudóttir á tímanum 02.52.02

Þess má geta að Bryndís er aðeins 16 ára gömul og því verður gaman að fylgjast með afrekum hennar í framtíðinni.

Að þessu sinni var bryddað upp á þeirri nýjung að lið og fyrirtæki gátu keppt og í flokki fyrirtækja varð veffyrirtækið DoHop í fyrsta sæti en í flokki liða var það EPO sem fór með sigur af hólmi.