Nú er fyrsta tölublaðið af Útiveru, gefið út af Athygli ehf., runnið frá prentvélunum og er verið að bera það út til áskrifenda. Einnig fæst Útivera á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson.
„Útivera var stofnuð árið 2003 af nokkrum áhugamönnum um útgáfu og fjallamennsku og við ætlum að halda okkur við þær línur sem þar voru lagðar. Í blaðinu verður fjallað um ferðalög innanlands og til fjarlægari landa, hvort sem er á tveimur jafnfljótum eða með farartækjum. Áhersla verður lögð á leiðarlýsingar með góðum ljósmyndum og birt verða viðtöl við fólk sem tengist ferðamennsku - allt þetta á erindi í Útiveru,“ segir Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Athygli sem jafnframt verður ritstjóri blaðsins, a.m.k. framan af.
Í þessu fyrsta tölublaði ársins er fjölbreytt og áhugavert efni. M.a. er ítarleg grein um Arnarfjörð í máli og myndum og áhrif þess ef olíuhreinsunarstöð rís þar af grunni, ferðasögu frá Víetnam eftir Sigurð Boga Sævarsson er að finna í blaðinu, þar er grein um Fimmvörðuháls og það svæði sem nú er undirorpið áhrifum tveggja eldgosa auk þess sem slegist er í för með hjólagörpum um Evrópu. Þá er fróðleg leiðarlýsing af göngu um Tröllaskaga, jökull er tekinn í fóstur og arkað á Rótarfjallshnúk. Þá er í blaðinu ítarlegt viðtal við Ólaf Örn Haraldsson, forseta Ferðafélags Íslands og nýskipaðan þjóðgarðsvörð á Þingvöllum. Er þá fátt eitt nefnt.
Í ritnefnd Útiveru eru þau Ragnheiður Davíðsdóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson og Gunnar Hólm Hjálmarsson.
Endurvakin Útivera!