Fyrsta tölublað Útiveru þessa árs er komið út og fer það í dreifingu til áskrifenda og á sölustaði næstu daga. Eins og endranær skrifa margir í blaðið að þessu sinni en með því móti reynum við að tryggja fjölbreytt og læsilegt blað. Notum við hér enn og aftur tækifærið til að hvetja alla til að senda okkur efni, ýmist gegnum netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða með því að hafa samband við Athygli ehf. í síma 515 5200.
Við hvetjum jafnframt alla til að gerast áskrifendur en það er ódýr og einföld leið til að fá þetta fagrit um útivist og ferðalög heim til sín. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði og kostar hvert tölublað einungis 950 krónur ef greitt er með korti. Útivera fæst einnig á sölustöðum N1 og Skeljungs um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson.
Síðasta tölublað Útiveru þessa árs er komið út og hefur því verið dreift til áskrifenda og á sölustaði. Margir skrifa í blaðið að þessu sinni en sem betur fer hafa margir áhuga á að koma efni á framfæri sem tryggir auðvitað fjölbreytt og læsilegt efni.
Þriðja tölublað Útiveru þessa árs er komið út og er það eins og venjulega fullt af fróðlegu efni fyrir alla þá sem áhuga hafa á útivist og ferðalögum.
Fyrsta tölublað Útiveru á því herrans ári 2011 hefur litið dagsins ljðós og er verið að dreifa því til áskrifenda og í verslanir. Í blaðinu er gnótt efnisríkra greina og víða komið við að venju. Forsíðuna prýðir mynd af skonnortunni Hildi frá Húsavík en í blaðinu er grein sem segir frá ferð hennar til Kangertittivaq á Grænlandi eða Scoresbysunds sem mun vera lengsti fjörður í víðri veröld.
Þriðja tölublað Útiveru á þessu ári er komið út en það er 84 bls að stærð – efnismeira en nokkru sinni fyrr. Þar með lýkur fyrsta útgáfuárinu eftir að Athygli tók við sl. sumar en þetta er 3ja tölublað ársins. Á næsta ári verða tölublöðin fjögur talsins.