Útivera - tímarit um útivist

 
Þú ert hérna: Fréttir

Útivera komin til að vera!

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Útivera 2. tbl 2010Annað tölublað Útiveru á þessu ári er komið út og er þar að finna fjölbreytt efni. Blaðið er sent til áskrifenda auk þess sem það fæst m.a. á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson.  Athygli ehf. endurvakti útgáfuna eftir nokkurt hlé snemmsumars.

„Viðtökur við fyrsta tölublaðinu voru góðar og bæði auglýsendur og áskrifendur tóku framtaki okkar fagnandi. Það er einnig ánægjulegt að segja frá því að fjölmargir hafa haft samband við okkur með efni og efnishugmyndir en það er einmitt þannig sem útgáfa af þessu tagi virkar best; að lesendur séu vakandi fyrir efni blaðsins og komi með ábendingar um áhugaverða hluti,“ segir Valþór Hlöðversson ritstjóri.

Nánar...

Endurvakin Útivera!

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Endurvakin ÚtiveraNú er fyrsta tölublaðið af Útiveru, gefið út af Athygli ehf., runnið frá prentvélunum og er verið að bera það út til áskrifenda. Einnig fæst Útivera á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson.

„Útivera var stofnuð árið 2003 af nokkrum áhugamönnum um útgáfu og fjallamennsku og við ætlum að halda okkur við þær línur sem þar voru lagðar. Í blaðinu verður fjallað um ferðalög innanlands og til fjarlægari landa, hvort sem er á tveimur jafnfljótum eða með farartækjum. Áhersla verður lögð á leiðarlýsingar með góðum ljósmyndum og birt verða viðtöl við fólk sem tengist ferðamennsku - allt þetta á erindi í Útiveru,“ segir Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Athygli sem jafnframt verður ritstjóri blaðsins, a.m.k. framan af.

Nánar...

Bláa Lóns þrautin

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ljósmynd Jónas GuðmundssonÍ dag fór fram hin árlega Bláa Lónsþraut en hún er árlegur viðburður Hjólreiðafélags Reykjavíkur og var haldin í þrettánda skiptið í dag. Alls tóku um 120 manns þátt og lögðu af stað frá Strandgötunni í Hafnarfirði í meinlætis veðri í morgun. Flestir taka þátt sér til ánægju og yndisauka en aðrir sem hluta af keppnisröð sinni.

Nánar...

Erfiðasta fjallahjólakeppni heims?

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Erfiðasta fjallahjólakeppnina

Ein erfiðasta fjallahjólakeppni heims fer nú fram í Evrópu, Transalp keppnin en hjólað er frá Þýskalandi til Ítalíu í 8 leggjum.

 

Nánar...

Síða 1 af 7