
Gönguhátíðin Svartfuglinn hefst núna næstkomandi fimmtudag, 24. júlí og stendur til sunnudagsins 27. júlí. Á hátíðinni er boðið upp á göngur með leiðsögn auk þess sem boðið er upp á ýmsar uppákomur og viðburði. Nú í ár verða fjórar dagsgöngur í boði, miserfiðar.. Fyrsta daginn verður gengið Látrabjargið með Gísla Má Gíslasyni líffræðingi og mun hann fræða göngufólk um sögu og lífríki bjargsins, en fáir ef nokkur þekkir bjargið jafn vel og Gísli.
Á föstudaginn mun Gísli Súrsson taka á móti gestum á Auðabæ í Geirþjófsfirði. Siglt verður á báti frá Bíldudal og gengið verður um söguslóðir Gísla. Elfar Logi Hannesson mun flytja einleik sinn um Gísla Súrsson og sviðsmyndin er náttúran eins og hún var fyrir þúsund árum síðan þegar Gísli var veginn. Boðið verður upp á siglingu til baka eða göngu yfir að fossinum Dynjanda þar sem rúta mun taka á móti fólkinu og flytja það til baka.
Áskorun hátíðarinnar er flóttaleið Bjarna á Sjöundá. Hann var handtekinn fyrir morð og sat í varðhaldi á Haga á Barðaströnd. Þaðan strauk hann og fór fyrir Stálfjall, ófæra leið öllum nema þeim sem þekkja leynistíga í gegnum klettana. Leiðin er mjög seinfarin og einungis fyrir mjög vant göngufólk. Á leiðinni verður komið við í surtabrandsnámunum í Stálfjalli, stærstu námugöngum á Íslandi, og í kaldri Skor, þaðan sem Eggert Ólafsson ýtti í sína hinstu för. Fyrir þá sem ekki leggja í áskorunina vil ég benda á Tálknafjör á Tálknafirði með útimarkaði og dagskrá og áhugaverðan fyrirlestur Adolfs Friðrikssonar fornleifafræðings um uppgröftinn á Hring í Hringsdal sem haldinn verður kl. 15 í Minjasafninu á Hnjóti.
Sunnudagurinn er öllu léttari en hann hefst á kynningu í Hringsdal þar sem sagt verður frá merkum fornleifauppgreftri á víkingnum Hring. Siðan verður boðið upp á létta göngu úr Selárdal og yfir í Verdali. Í Selárdal verður safn Samúels, listamannsins með barnshjartað skoðað og síðan verður haldin ungmennahátið í gömlum stíl.
Frítt er í allar göngur en greiða þarf sérstaklega fyrir rútu og bátsferðir.
Nánar má sjá um hátíðina með því að smella hér.
Gönguhátíðin Svartfugl