Útivera - tímarit um útivist

 
Þú ert hérna: News Endurvakin Útivera!

Endurvakin Útivera!

Endurvakin  ÚtiveraNú er fyrsta tölublaðið af Útiveru, gefið út af Athygli ehf., runnið frá prentvélunum og er verið að bera það út til áskrifenda. Einnig fæst Útivera á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson.

 

„Útivera var stofnuð árið 2003 af nokkrum áhugamönnum um útgáfu og fjallamennsku og við ætlum að halda okkur við þær línur sem þar voru lagðar. Í blaðinu verður fjallað um ferðalög innanlands og til fjarlægari landa, hvort sem er á tveimur jafnfljótum eða með farartækjum. Áhersla verður lögð á leiðarlýsingar með góðum ljósmyndum og birt verða viðtöl við fólk sem tengist ferðamennsku - allt þetta á erindi í Útiveru,“ segir Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri Athygli sem jafnframt verður ritstjóri blaðsins, a.m.k. framan af.

Í þessu fyrsta tölublaði ársins er fjölbreytt og áhugavert efni. M.a. er ítarleg grein um Arnarfjörð í máli og myndum og áhrif þess ef olíuhreinsunarstöð rís þar af grunni, ferðasögu frá Víetnam eftir Sigurð Boga Sævarsson er að finna í blaðinu, þar er grein um Fimmvörðuháls og það svæði sem nú er undirorpið áhrifum tveggja eldgosa auk þess sem slegist er í för með hjólagörpum um Evrópu. Þá er fróðleg leiðarlýsing af göngu um Tröllaskaga, jökull er tekinn í fóstur og arkað á Rótarfjallshnúk. Þá er í blaðinu ítarlegt viðtal við Ólaf Örn Haraldsson, forseta Ferðafélags Íslands og nýskipaðan þjóðgarðsvörð á Þingvöllum. Er þá fátt eitt nefnt.

Í ritnefnd Útiveru eru þau Ragnheiður Davíðsdóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson og Gunnar Hólm Hjálmarsson.