Annað tölublað Útiveru á þessu ári er komið út og er þar að finna fjölbreytt efni. Blaðið er sent til áskrifenda auk þess sem það fæst m.a. á sölustöðum N1 um land allt, í Hagkaupsverslunum og hjá Pennanum Eymundsson. Athygli ehf. endurvakti útgáfuna eftir nokkurt hlé snemmsumars.
„Viðtökur við fyrsta tölublaðinu voru góðar og bæði auglýsendur og áskrifendur tóku framtaki okkar fagnandi. Það er einnig ánægjulegt að segja frá því að fjölmargir hafa haft samband við okkur með efni og efnishugmyndir en það er einmitt þannig sem útgáfa af þessu tagi virkar best; að lesendur séu vakandi fyrir efni blaðsins og komi með ábendingar um áhugaverða hluti,“ segir Valþór Hlöðversson ritstjóri.
Blaðið nú er stútfullt af efni og má nefna grein eftir Hjördísi Hilmarsdóttur fararstjóra sem segir frá gönguferð í góðra vina hópi um Víknaslóðir og Loðmundarfjörð, rætt er við Þórarinn Eyfjörð, formann Útivistar en félagið heldur upp á 35 ára afmæli sitt á þessu ári, Gerður Steinþórsdóttir fer með okkur þrjár dagleiðir í nágrenni Arnarfjarðar og við fylgjum Bergþóru Sigurðardóttur í fótspor Rómverja og herja Napóleons Bónaparte um Stóra Sankti Bernharðsskarð á landamærum Sviss og Ítalíu. Þá er rætt við Fjölni Björgvinsson, formann Íslenska fjallahjólaklúbbsins í blaðinu, sagt er frá hestaferð með Skorrahestum um Gerpissvæðið og rætt er við Ólínu Þorvarðardóttur, alþingismann og félaga í Björgunarhundasveit Íslands. Þá er sagt frá skemmtilegri jeppaferð kringum Kerlingarfjöll, Reykjavegurinn er genginn og við birtum nýjan ljósmyndaþátt með afburða ljósmyndum Lárusar Karls Ingasonar ljósmyndara úr náttúru Íslands.
Þriðja tölublað Útiveru á þessu ári kemur út í byrjun desember en á næsta ári verða tölublöðin fjögur.
Útivera komin til að vera!